Blog Layout

Membrasin fæðubótaefnið vinnur gegn þurrki

Flestir upplifa einhvern tímann á lífsleiðinni einhverskonar þurrk...

-  það getur verið, leggangaþurrkur, húðþurrkur eða munnþurrkur. Kynfæri, nef, lungu og meltingarfæri eiga það sameiginlegt að vera þakið viðkvæmri slímhúð. 


Hvað er til ráða ? Hvernig er hægt að laga eða koma í veg fyrir að við finnum fyrir þessum þurrki ?


Membrasin er fæðubótarefni sem inniheldur náttúrulegt beta-karótín, með uppsprettu A-vítamíns sem stuðlar að því að viðhalda eðlilegri starfsemi slímhúðar og húðar. Í fæðubótarefninu er einnig E-vítamín sem stuðlar að verndun fruma gegn oxunarálagi.


Í bætiefninu er hafþyrnisolía sem virkar sem eins konar smurning innan frá, en afhverju gerir hún það ? Jú það er af því að olían er mögnuð og einstök af því leitinu til að hún inniheldur mikið magn af Omega 7 fitusýrunni. Það hefur komið í ljós að hún hefur mikla virkni og er því þekkt fyrir að vera einstaklega nærandi, mýkjandi og uppbyggjandi fyrir húðina okkar og með því að taka inn olíuna í formi bætiefnis er hægt að vinna gegn þessum leiðinlega þurrki.


Membrasin hentar fyrir alla einstaklinga þar sem bætiefnið inniheldur ekki glúten, laktósa, mjólkurvörur, ger, sykur, gervi litarefni og GMO. En fyrir þá einstaklinga sem eru að glíma við alvarlega sjúkdóma (krabbamein, hjarta- eða æðasjúkdóma) mælum við með að tala við lækninn sinn áður en inntaka hefst.


Hefur þú upplifað kláða, sviða, óþæginda eftir sund eða sársauka við að stunda kynlíf ?


Þetta gætu allt verið einkenni leggangaþurrks. Talið er að um 80% kvenna finni fyrir leggangaþurrk sem er mjög há prósenta. Konur sem eru á breytingarskeiði, hafa verið í krabbameinsmeðferð eða eru með barn á brjósti glíma oft við leggangaþurrk og geta mikil óþægindi og vanlíðan fylgt þessum leiðinlega þurrki sem getur haft veruleg áhrif á lífsgæði og hreinlega löngunar í að stunda kynlíf.


Membrasin leggangakremið nærir slímhúð legganga sem og slímhúð ytri kynfæra. Kremið er notað í leggöng en einnig er hægt að bera það á húðina í kringum kynfærasvæðið. Kremið er hormónalaus meðferð sem inniheldur hafþyrnisolíu sem er rík af Omega 7 fitusýrum og hyaluronsýru sem eykur raka og mýkir. Kremið inniheldur einnig mjólkursýru sem hefur mjög góð áhrif á bakteríuflóru legganga og hjálpar einnig við að halda réttu sýrustigi sem er mjög mikilvægt.


Það eru gjarnan þær sem eru á breytingaskeiði, hafa verið í krabbameinsmeðferð, taka ákveðin lyf, eru með barn á brjósti eða þjást af sjúkdómi sem finna fyrir þurrki á kynfærasvæðinu.


Membrasin fæðubótaefnið og leggangakremið er frábært par til að auka lífsgæði allra þeirra sem glíma við einhvers konar þurrk.

Skoða vörur hér:


Hægt er að kaupa Membrasin vörurnar í flestum apótekum, Hagkaup, Heilsuhúsinu Kringlunni og Fræinu Fjarðarkaup.


Deila

07 May, 2024
Mesta snilld sem ég hef prófað og gæti ekki mælt meira með!
03 May, 2024
Ertu að leita að skemmtilegu, ljúffengu og algerlega framkvæmanlegu matreiðsluverkefni til að deila með litlu börnunum þínum eða barnabörnum?
14 Jul, 2023
Membrasin Moisture fæðubótarefni
Fleiri pistlar
Share by: