Blog Layout

Er þurrkurinn að ganga frá þér?

Ertu að glíma við þurrk í húð, leggöngum eða augum?


Nú er orðið kalt í veðri og margir farnir að finna fyrir þurrki, það getur verið þurrkur í húðinni, hárinu, augunum, nefinu eða leggöngunum, gjörsamlega allt að skrælna....


Loftið er þurrt, náttúran er þurr og við erum þurr. Veðrinu stjórnum við ekki en við getum hins vegar hjálpað kroppnum okkar að tækla þennan leiðindar þurrk.

Fitusýrur til inntöku eru öflugar þegar kemur að því að vinna gegn þurrki en á síðustu árum hefur verið rannsakað hvaða fitusýra það er sem hjálpar til við þurrk og það er Omega 7 fitusýran. Omega 7 fitusýruna er að finna í olíu sem heitir hafþyrnisolía og má finna hana í Membrasin vörunum.


Membrasin pörin eru tvö og það er algjörlega einstakt hvernig þessi pör vinna saman að markmiðum sínum.


Annað parið er sérstaklega hannað fyrir augu, bætiefni til inntöku og augnúði til að spreyja á augnlokin (hann vinnur svo inní augunum). Þessar vörur henta að sjálfsögðu öllum kynjum enda er augnþurrkur ekki kynbundið fyrirbæri. Ekki það að konur á breytingaskeiði eru sérstaklega útsettar fyrir þessu, en aðrir sleppa samt ekkert.


Vision bætiefnið inniheldur:


  • Hafþyrnisolíu.
  • Lútein og zeaxanthin sem bæði auka virkni vörunnar með því að vinna gegn skaðlegum geislum frá snjalltækjum og tölvuskjám. Lútein er þekkt bætiefni fyrir augu og augnbotna. Hjálpar til við að blokkera áhrifin frá bláa ljósinu sem stafar af þessum tækjum.


Vision augnúðinn inniheldur:


  • Hafþyrnisolíu og hýalúrónat.
  • Engin rotvarnarefni, alkóhól eða fosföt og er algjörlega laus við dýraafurðir og er því vegan.
  • Flokkaður sem lækningatæki með sannaða virkni og er framleiddur í Finnlandi undir ströngustu gæðakröfum og samkvæmt evrópskum reglugerðum.
  • 300 skammtar


Hitt parið er sérstaklega hannað til að vinna gegn leggangaþurrki kvenna, en talið er að um 80% upplifi þau óþægindi einhvern tímann á ævinni. Parið samanstendur af bætiefni til inntöku og kremi til að nota í leggöng og á kynfæri.

Bætiefnið er algert dúndur fyrir alla slímhúð og húðina almennt, en margir eru að taka bætiefnið í vetrarþurrkinum. Þetta er það allra besta sem við getum gert til þess að næra húðina innan frá. Kremið er hormónalaus meðferð og hefur góð áhrif á bakteríuflóru legganga.


Moisture bætiefnið inniheldur:


  • Hreina hafþyrnisolíu
  • A og E vítamín í litlum skömmtum, rétt til þess að ýta undir virknina.


Moisture leggangakremið inniheldur:


  • Hafþyrnisolíu.
  • Hýalúrónsýru upp á rakann að gera.
  • Mjólkursýru til að halda réttu sýrustigi í leggöngum og koma í veg fyrir sýkingar.


Skoða Membrasin hér:


Hægt er að kaupa Membrasin vörurnar í flestum apótekum, Hagkaup, Heilsuhúsinu Kringlunni og Fræinu Fjarðarkaup.

Deila

07 May, 2024
Mesta snilld sem ég hef prófað og gæti ekki mælt meira með!
03 May, 2024
Ertu að leita að skemmtilegu, ljúffengu og algerlega framkvæmanlegu matreiðsluverkefni til að deila með litlu börnunum þínum eða barnabörnum?
14 Jul, 2023
Membrasin Moisture fæðubótarefni
Fleiri pistlar
Share by: