Inga Kristjáns næringarþerapisti fjallar um Max Hydrate freyðitöflurnar:
"Það vill enginn vera þreyttur þurr og svimandi!
Hins vegar er það leynt vandamál, ekki svo lítið eða óalgengt, að fólk þjáist af vökvaójafnvægi og skorti
á steinefnum og söltum.
Einkennin geta verið margvísleg og sömuleiðis geta ástæðurnar verið fjölmargar,“ segir Inga og leggur
áherslu á orð sín og bætir síðan við: „Þreyta, svimi, sinadráttur og krampar, minnistruflanir, húðþurrkur, mikið orkuleysi og tíðar klósettferðir (svona eins og líkaminn nái ekki að halda í vökvann sem drukkinn er). Þetta kannast margir við.“
Hverjir eru helst útsettir fyrir að vanta steinefni og sölt?
„Mjög margir. Íþróttafólk, dugnaðarforkar í ræktinni, hlauparar, golfarar, göngufólk, þeir sem stunda jóga,
sund og sömuleiðis pottafólk. Einnig eldri borgarar, konur á breytingaskeiði sem svitna mikið, þeir sem eru á ketó mataræði (ketó-flensan) og fleiri.
Einnig má nefna þá sem drekka mikið kaffi en einn Max Hydrate Energy getur svo sannarlega komið í stað kaffibollans (eða gosdrykkjarins)!
Trace Minerals Max Hydrate freyðitöflurnar innihalda allar mikilvæg steinefnasölt.
Þær koma í þremur útgáfum.