Blog Layout

Þurrkur í leggöngum skerðir lífsgæði

Fjölmargar konur glíma við leggangaþurrk og óþægindi á kynfærasvæði einverntíma á lífsleiðinni. 

Það eru gjarnan þær sem eru á breytingaskeiði, hafa verið í krabbameinsmeðferð, taka ákveðin lyf, eru með barn á brjósti eða þjást af sjúkdómi sem veldur þurrki á kynfærasvæðinu.


Mikil óþægindi og vanlíðan getur fylgt þessum þurrki og haft veruleg áhrif á lífsgæði og löngunar til að stunda kynlíf og ýmsa hreyfingu sem dæmi. Membrasin Vitality leggangakremið hefur hjálpað mörgum konum sem glíma við þetta vandamál. 


Kremið er notað í leggöng og hægt er að bera það á húðina í kringum kynfærasvæðið. Kremið er hormónalaus meðferð við leggangaþurrki og er lækningatæki með sannaða virkni (MD-lækningatæki).


Kremið nærir slímhúð legganga sem og slímhúð ytri kynfæra. Það inniheldur hafþyrnisolíu BA24® sem er rík af Omega 7 fitusýrum og hyaluronsýru sem eikur raka og mýkir. Einnig inniheldur það mjólkursýru sem hefur góð áhrif á bakteríuflóru legganga og stuðlar að réttu sýrustigi sem er mikilvægt. 


Hægt er að kaupa Membrasin kremið í flestum apótekum, Hagkaup, Heilsuhúsinu Kringlunni og Fræinu Fjarðarkaup.



Deila

07 May, 2024
Mesta snilld sem ég hef prófað og gæti ekki mælt meira með!
03 May, 2024
Ertu að leita að skemmtilegu, ljúffengu og algerlega framkvæmanlegu matreiðsluverkefni til að deila með litlu börnunum þínum eða barnabörnum?
14 Jul, 2023
Membrasin Moisture fæðubótarefni
Fleiri pistlar
Share by: