Blog Layout

Kynorkan skiptir máli !

FYRIR ÞIG, ÁSTINA OG LÍFIÐ

Hver kannast ekki við orkuleysi nú eða minnkaða kynhvöt?


Á einhverjum tímapunkti í lífi flestra einstaklinga finnur fólk fyrir þreytu og streitueinkennum og hvað varðar kynorkuna þá getur hún svo sannarlega goldið fyrir þeim, ekki hvað síst hjá ungu fólki. Þessi einkenni geta verið af völdum álags í vinnu, áfalla, álags heima fyrir eða einfaldlega að hafa gert of miklar kröfur til sjálfs síns sem hefur leitt til þess að einstaklingar hreinlega bugast. 


Orkuleysi, framtaksleysi, þreyta, streita og minni löngun í kynlíf eru vandamál sem allt of margir þekkja. Einnig er það svo, að með hækkuðum aldri getur löngun og geta til að stunda kynlíf minnkað og fyrir því geta verið margar ástæður en fer algjörlega eftir því hvar fólk er statt á lífsins leið. Það að hafa löngun og getu til njóta kynlífs eru einnig lífsgæði, sem alls ekki má vanmeta!
Það að hafa orku til að gera skemmtilega hluti, hreyfa sig, sinna vinnunni og tómstundunum eru svo sannarlega lífsgæði og allt of margir njóta þeirra ekki.


Það mun vera þekkt staðreynd að um 50% karla og kvenna yfir fertugu líður fyrir þetta vandamál.
 

L- Argiplex, fyrir karla og konur, getur svo sannarlega hjálpað.


Bætiefnin innihalda einstaka samsetningu orku og getuaukandi amínósýra, vítamína, steinefna og jurta. Amínósýrurnar eru L-arginine, L-citrulline og L-ornithine. Í líkamanum er L-arginín breytt í nituroxíð. Nituroxíð er mikilvægt boðefni fyrir starfsemi líkamans og einnig mikilvægt fyrir kynhvöt okkar. Það eykur nefnilega blóðflæði sem hefur jákvæð áhrif á bæði löngun og orku. Ásamt L-sítrullíni

og L-ornitíni heldur líkaminn L-arginíni lengur. Þess vegna er samsetning þessara þriggja amínósýra árangursþáttur þegar kemur að löngun og orku.
 
Formúlurnar eru úthugsaðar með þarfir kynjanna í huga og eru bætiefnin langsöluhæstu í sínum flokki í Svíþjóð. L-Argiplex bætiefnin voru þróuð af helstu sérfræðingum í Svíþjóð.
 
L- Argiplex er sérhannað til að auka Nitric Oxide í líkamanum, sem leiðir til aukins blóðflæðis, meðal annars til kynfæra. L-Argiplex eru langsöluhæstu bætiefnin í sínum flokki í Svíþjóð og voru þróaðar í samvinnu við helstu sérfræðinga Svíþjóðar á þessu sviði. Þróun bætiefnanna er byggð á rannsóknum á þessum ákveðnu amínósýrum og fengu rannsakendur nóbelsverðlaun árið 1998.
 

Hverjum er L-Argiplex ætlað?
 
L-Argiplex er ætlað þeim sem vilja:



  • Gott breiðvirkt bætiefni sem eykur orku og þrek
  • Meiri löngun í kynlíf
  • Meiri líkamlega virkni og getu í kynlífi
  • Betra blóðflæði í líkamanum með auknu Nitric Oxide 
  • Hraðari endurheimt eftir æfingar og átök 


Fullorðnir eldri en 18 geta notið góðs af því að nota L-Argiplex. 
 

L-Argiplex fæst í flestum apótekum, Fræinu Fjarðarkaup og Hagkaup.


Ekki sætta þig við skert lífsgæði!


       

LESTU NÁNAR UM L-ARGIPLEX HÉR


Deila

07 May, 2024
Mesta snilld sem ég hef prófað og gæti ekki mælt meira með!
03 May, 2024
Ertu að leita að skemmtilegu, ljúffengu og algerlega framkvæmanlegu matreiðsluverkefni til að deila með litlu börnunum þínum eða barnabörnum?
14 Jul, 2023
Membrasin Moisture fæðubótarefni
Fleiri pistlar
Share by: