Eftirréttur sem slær í gegn!
Vantar þig hugmynd af nýjum eftirrétti til að bera fram til dæmis um áramótin? Þessi fallegi eftirréttur eða desert bragðast guðdómlega vel og er ekki síður fallegur á hátíðarborðið.
Turtle Choco Pillows er lífrænt, glúten frítt mjög bragðgott með heslihnetu-fyllingu
Þessi uppskrift er fyrir fjórar skálar
Innihald:
10 dl Turtle Cocoa koddar - magn fer eftir hvaða form er notað) eða um 2 dl í hverja skál
3 egg, aðskilin í eggarauður og eggjahvítur
50 g sykur
1 tsk vanilludropar
250 g mascapone ostur
150 ml espresso kaffi
½ dl Cointreau líkjör - má sleppa
Dökkt kakó duft
Aðferð:
- Hellið upp á espresso kaffi og leyfið því að kólna.
- Aðskiljið eggin, þeytið eggjarauðurnar með sykrinum og vanilludropum þangað til blandan er létt og ljós u.þ.b. 5 mín.
- Bætið mascapone ostinum út í og þeytið saman við.
- Þeytið eggjahvíturnar í annarri skál þar til topparnir verða milli stífir (ekki eins stífir og þegar verið er að gera marengs)
- Bætið eggjahvítunum rólega saman við með sleikju.
- Bætið Cointreau út í kaffið og setjið í lítið ílát með flötum botni, raðið nokkrum Cocoa koddum ofan í formið og leyfið kaffinu að blandast koddunum vel. Raðið helmingnum í botninn á forminu sem þú ætlar að nota t.d. glös eða kökuform. Setjið helminginn af eggjablöndunni yfir. Raðið svo kaffidrekktu koddunum frá Turtle ofan á og setjið restina af eggjablöndunni næst yfir.
- Sigtið kakó yfir og geymið inn í ísskáp í minnst 4 klst.


