Membrasin

Safn: Membrasin

Verð Endurhlaða
kr
0
5798
kr
kr
Verð lægsta til hæsta
Flokka eftir
Sía og raða
Sía og raða

6 products

Flokkun
Verð
kr
kr
Vörumerki
Vöruflokkar

6 products

Membrasin Moisture bætiefni | Spurningar og svör

Hve fljótt geta jákvæð áhrif verið að komið í ljós?

Að öllu jöfnu eftir 2-5 vikna reglulega notkun.

Ætti ég að taka Membrasin moisture hylkin inn með mat?

Mælt er með því að taka hylkin með máltíðum þar sem það eykur frásog virku innihaldsefnanna.

Úr hverju eru hylkin gerð?

Hylkin eru 100% úr jurtaríkinu, aðal innihaldsefnið er maíssterkja.

Henta Membrasin moisture hylkin fyrir grænkera (vegan)?

Já, virku innihaldsefnin og hylkin eru 100% úr jurtaríkinu og henta því fyrir vegan lífsstílinn.

Einnig fyrir Halal og kosher mataræði.

Getur bætiefnið valdið einhverjum aukaverkunum?

Ekki hefur verið greint frá neinum sérstökum aukaverkunum. Hjá fólki sem þjáist af bakflæði frá meltingarfærum geta öll bætiefni sem innihalda olíu valdið einkennum og af þeim sökum er mælt með því að taka hylkin inn með máltíðum ásamt vatni.

Hvernig er olían í bætiefninu framleidd, hvaða aðferð er notuð?

SBA24® hafþyrnisolía (Sea Buckthorn Oil) er framleidd með SFE aðferðinni (Supercritical Fluid Extraction), þar sem olían úr hafþyrnisberjunum er dreginn út með koldíoxíði undir þrýstingi.

Blíður ferillinn inniheldur ekki notkun á neinum skaðlegum leysiefnum og skilar sér því í algjörlega hreinni og ómengaðri vöru.

Hvernig hefur virkni vörunnar verið sannreynd?

Varan hefur verið prófuð í klínískum rannsóknum þar sem verkun hefur verið borin saman við lyfleysuolíu. Verkun hefur verið prófuð með því að mæla, til dæmis, vökvastig og mýkt slímhúðar sem og með einkennadagbókum. Hvorki þátttakendur rannsóknarinnar né vísindamennirnir vissu meðan á rannsókninni stóð hvaða olíu þátttakendur voru að taka.

Er Membrasin moisture bætiefnið laust við glúten, laktósa, mjólkurvörur, ger, sykur, gervi litarefni og GMO?

Já, bætiefnið inniheldur ekkert af ofangreindu.

Er bætiefnið öruggt til inntöku fyrir þungaðar konur og mæður með börn á brjósti?

Já, Membrasin moisture bætiefna-hylkininnihalda gæðastýrða hreina næringarolíu, lausa við mengunarefni eða önnur hugsanleg skaðleg efni.

Er í lagi fyrir börn að taka inn hylkin og hver er þá skammturinn fyrir þau?

Börn mega taka inn hylkin vegna þess að þau innihalda hreina olíu sem hentar börnum vel.

Skammtastærðir fyrir börn eru 1-2 hylki á dag.

Er í lagi að taka Membrasin moisture bætiefnið með öðrum fitusýrum, eins og fiskolíu?

Já, en þá er ráðlagður dagskammtur 1-2 hylki.

Er í lagi að taka inn bætiefnið ef viðkomandi er á einhverjum lyfjum??

Ef þú ert með alvarlegan sjúkdóm (krabbamein, hjarta- eða æðasjúkdóma osfrv.) þá er mælt með mælt með því að þú ræðir inntöku á olíu / andoxunarefnum við lækninn þinn.

Membrasin Moisture leggangakrem | Spurningar og svör

Hvernig virkar Membrasin moisture leggangakremið?

Kremið nærir slímhúð legganganna og minnkar einkenni sem tengjast þurrki, ertingu, viðkvæmni, kláða og sársauka. Þessi einkenni geta komið fram í daglegu lífi, við íþróttaiðkun og við samfarir.

Membrasin leggangakremið er vottað sem lækningatæki með sannaða virkni og er sprautað inn í leggöng og borið á kynfærasvæði.

Hver er munurinn á Membrasin moisture leggangakreminu og öðrum kremum úr sama flokki?

Klínískt sönnuð þreföld verkun kremsins er einstök. Kremið inniheldur 3 virk náttúruleg innihaldsefni:

Hafþyrnisolíu sem stuðlar að heilbrigði og mýkt slímhúðar í leggöngum og á kynfærasvæði, hýalúrónat (hýalúnsýru) sem eykur raka raka og mjólkursýru sem viðheldur eðlilegu pH jafnvægi.

Saman stuðla þessi efni að meiri raka, mýkt og eðlilegri gerlaflóru legganga.

Er Membrasin moisture leggangakremið hentugt fyrir ungar konur?

Já, Membrasin leggangakremið hentar konum á öllum aldri, einnig ungum konum.

Leggangaþurrkur hjá yngri konum getur verið aukaverkun getnaðarvarnarlyfja, ýmissa annarra lyfja og getur komið fram vegna ýmissa sjúkdóma eða jafnvel streitu.

Hvernig nota ég membrasin leggangakremið?

Kremið er borið í leggöngin og á ytri kynfæri einu sinni á dag, svo og á ytri kynfæri eftir þvott. Kremið er sett í leggöngin með því að nota stjökuna sem fylgir með í pakkningunni og borið á ytri kynfæri með hreinum höndum.

Hvenær dagsins er best að nota kremið?

Við mælum með því að nota kremið á kvöldin, fyrir svefn, til að tryggja sem best að kremið haldist á sínum stað og til að hámarka virknina.

Inniheldur Membrasin moisture leggangakremið hormóna, ilmefni eða litarefni?

Nei, kremið er laust við hormón, ilm og litarefni, paraben, soja, glúten og erfðabreytt innihaldsefni.

Varan er ekki prófuð á dýrum.

Inniheldur Membrasin moisture leggangakremið dýraafurði?

Nei, öll innihaldsefnin í kreminu eru úr jurtaríkinu.

Hvernig á ég að halda stjökunni sem fylgir kreminu hreinni?

Þvoið stjökuna vandlega með volgu vatni eftir hverja notkun.

Dragðu stimpilinn út úr rörinu og þvoðu báða hlutana vel.

Þurrkið með salernispappír eða pappírsþurrku og látið þorna á hreinu yfirborði.

Þvoðu hendurnar alltaf áður en þú notar vöruna.

Hversu oft má nota stjökuna?

Stjakan er hönnuð til margnota, einungis þarf að gæta þess að þvo og þurrka hana vandlega samkvæmt leiðbeiningum, á milli þess sem hún er notuð.

Má ég nota aðra stjöku til að nota kremið en þá sem fylgir með í pakkanum?

Membrasin leggangakremið má aðeins nota með upprunalegu stjökunni.

Notaðu ekki aðra stjöku en þá sem fylgir með í pakkanum.

Slímhúð legganga minna er mjög viðkvæm og þurr. hvernig get ég verið viss um að stjakan meiði mig ekki?

Þú gætir borið ögn af kreminu á endann á stjökunni til smurningar.

Ef slímhúðin er mjög viðkvæm og þurr þá ráðleggjum við fyrst inntöku á Membrasin vitality pearls bætiefninu í 2 til 5 vikur og prófa kremið svo aftur. Þessar tvær vörur, kremið og bætiefnið vinna saman í einstakri tveggja þrepa lausn til að mýkja, gefa raka og lina þrautir frá svæðinu.

Hversu lengi þarf ég að nota Membrasin moisture leggangakremið þar til einkennin hverfa?

Við mælum með daglegri notkun Membrasin moisture kreminu ásamt daglegri inntöku Membrasin moisture bætiefninu, sérstaklega þegar einkennin eru alvarleg.

Yfirleitt minnka einkennin innan 2-5 vikna.

Margar konur hafa svo fengið varanlega bót með stöðugri inntöku Membrasin moisture bætiefninu.

Ég upplifði einskonar brunatilfinningu eftir að hafa notað Membrasin moisture leggangakremið. ætti ég að halda áfram að nota kremið?

Ef slímhúðin er mjög þurr, getur kremið valdið tímabundinni ertingu í fyrsta skipti sem það er notað.

Ef þú finnur fyrir miklum óþægindum til langs tíma, svo sem kláða eða bruna, skaltu hætta að nota kremið. Notaðu ekki kremið ef þú veist að þú ert með ofnæmi / viðkvæmni fyrir einhverju innihaldsefnanna.

Get ég nota moisture leggangakremið ef ég er með brjóstakrabbamein og er á andhormónameðferð sem veldur þurrki í leggöngum?

Já, Membrasin kremið er hormónalaut krem með sannaða virkni og hentar mjög vel konum sem eru á andhormónameðferð og vilja forðast vörur sem hafa hormónavirkni.

Get ég notað Membrasin moisture kremið ef ég er með einhvers konar sýkingu í leggöngum?

Ef þú ert með sýkingu / bólgu á svæðinu þá skaltu ekki nota kremið án þess að ráðfæra þig við lækninn þinn. Hins vegar mælum við með að þú notir Membrasin moisture bætiefnahylkin til inntöku, jafnvel þó kremið sé af einhverjum ástæðum ekki valkostur fyrir þig.

Get ég notað Membrasin moisture leggangakremið ef ég nota smokk við samfarir?

Við ráðleggjum að nota ekki kremið ef þú hefur samfarir með smokk þar sem olíurnar í kreminu geta haft áhrif á endingu smokksins.

Get ég notað Membrasin moisture leggangakremið þegar ég er að reyna að verða þunguð?

Já, það er ekkert sem bendir til þess að innihaldsefnin hafi áhrif á getnað.

Get ég notað Membrasin moisture leggangakremið á meðgöngu?

Já, þú getur notað kremið, en ekki nota stjökuna á meðgöngu. Berið kremið á með hreinum fingrum án þess að nota stjökuna.

Get ég nota Membrasin moisture leggangakremið ef ég er með barn á brjósti?

Já, það er ekkert sem bendir til þess að innihaldsefnin frásogist út í blóðið.

Membrasin Vision bætiefni | Spurningar og svör

Hve fljótt má vænta árangurs af inntöku Membrasin Vision bætiefninu og minnkuðum einkennum augnþurrks?

Venjulega kemur árangur fram eftir 2-5 vikna reglulega notkun.

Ætti ég að taka bætiefnahylkin með máltíðum?

Mælt er með því að taka hylkin með máltíðum, þar sem það eykur frásog virku innihaldsefnanna.

Úr hverju eru hylkin gerð?

Hylkin er að fullu úr jurtaríkinu, úr maíssterkju.

Hentar Membrasin Vision hylkin fyrir grænkera (vegan)?

Já, virku innihaldsefnin og hylkin eru 100% úr jurtaríkinu og henta því fyrir vegan lífsstílinn.

Einnig fyrir Halal og kosher mataræði.

Hentar varan fyrir vegan lífsstílinn?

Já, bæði virku innihaldsefnin og hylkin eru að fullu úr jurtaríkinu. Varan hentar vel fyrir vegan og fólki á halal og kosher fæði.

Er bætiefnið án glútens, mjólkur og erfðabreyttra innihaldsefna?

Mega börn taka Membrasin Vision hylkin?

Já börn mega taka hylkin, vegna þess að þau innihalda hreina næringarolíu. Ráðlagður skammtur fyrir börn eru 1-2 hylki á dag.

Eru einhverjar aukaverkanir fylgjandi inntöku bætiefnisins?

Ekki hefur verið greint frá neinum sérstökum slíkum áhrifum. Hjá fólki sem þjáist af bakflæði í meltingarvegi geta allar vörur sem innihalda olíu valdið einkennum og þess vegna er mælt með því að taka hylkin með máltíðum ásamt vatni. Jákvæð aukaverkun gæti verið aukinn raki og mýkt í annarri slímhúð en augna, sem og í húð.

Hvernig fer framleiðslan á olíunni fram, hvaða aðferð er notuð?

SBA24® Sea Buckthorn Oil er framleidd með SFE aðferðinni (Supercritical Fluid Extraction), þar sem olíuhluti berjahráefnisins er dreginn út með koltvísýringi undir þrýstingi. Í ferlinu eru ekki notuð nein skaðleg leysiefni og varan því algjörlega hrein.

Hvernig hefur virkni og árangur af inntöku vörunnar verið rannsakaður / sannaður?

Varan hefur verið prófuð í klínískum rannsóknum þar sem verkun hefur verið borin saman við lyfleysuolíu. Virkni hefur verið prófuð með því að mæla til dæmis vökvastig og mýkt slímhúðar sem og með dagbókum einkenna. Hvorki prufuhópur né vísindamenn vissu meðan á rannsókninni stóð hvaða olíu prufuhópurinn tók.

Má taka bætiefnið á meðan á þungun eða brjóstagjöf stendur?

Já, varan inniheldur gæðastýrða hreina næringarolíu, laus við aðskotaefni eða önnur skaðleg efni.

Má nota bætiefnið ef viðkomandi tekur inn einhver lyf?

Ef þú ert með alvarlegan sjúkdóm (krabbamein, hjarta- og æðasjúkdóma osfrv.) mælum við með því að þú ræðir við lækninn þinn um notkun olíu / andoxunarefna.

Membrasin Vision augnúði | Spurningar og svör

Hversu mörgum sinnum á dag get ég notað Membrasin Vision úðann?

Membrasin Vision augnúðanum má úða á lokuð augnlok nokkrum sinnum á dag og eftir þörfum. Ráðleggingar um venjulega notkun eru 1-2 úðar 1-4 sinnum á dag.

Það er dálítið stíft að úða úr flöskunni, hvernig stendur á því?

Flaskan er með tveggja þrepa úða búnaði. Fyrst skaltu ýta skammtaranum niður um það bil 2/3 af leiðinni og aðeins eftir það alla leið niður. Ef þú reynir að ýta í einu lagi gæti það verið dálítið stíft.

Er úðinn ætlaður til stöðugrar notkunar?

Já, Memrasin Vision úðinn er klínískt prófaður, CE merktur  og staðfest með rannsóknum að langtímanotkun á honum er örugg.

Hvernig er best að nota úðann svo ég hitti vel á augnlokin með lokuð augun?

Eftir smá æfingu verður notkunin auðveld. Úðinn virkar best þegar þú þrýstir skammtaranum fyrst niður hluta leiðarinnar, einbeitir þér síðan að stútnum, lokar augunum, þrýstir skammtaranum alla leið niður og heldur hendinni stöðugri.

Hefur Membrasin Vision úðinn áhrif á hrukkur í kringum augun?

Úðinn hefur rakagefandi áhrif á húðina í kringum augun. Þegar húðin er rakafyllt helst hún þétt og lítur út fyrir að vera sléttari.

Má nota úðann eftir að notaður hefur verið augnfarði?

Já, úðinn hefur ekki áhrif á maskara eða augnfarða. Í klínísku prófunum var förðun látin þorna í 10 mínútur áður en úðinn var notaður.

Mega þeir sem nota augnlinsur nota úðann?

Já, hann gefur snertilinsum einnig viðbótar raka án þess að valda óskýrleika í sjón.

Getur hafþyrnisolían litað augun?

Það gerir hún ekki, vegna þess að í vöruna er notuð litlaus gæða hafþyrnisolía sem sérstaklega er þróuð í þessum tilgangi.

Má nota úðann á börn?

Það má gera það, en hafa skal úðaglasið 25 cm frá auganu þegar úðað er. Ef augu barnsins eru rauð og rennur úr þeim, þá er líklegt að barnið sé með augnsýkingu sem læknir ætti þá að meðhöndla.

Hvað er ef úðinn hittir ekki augað?

Það er ekki vandamál. Innihaldsefni vörunnar virka einnig sem rakakrem fyrir húðina á augnsvæðinu.

Membrasin Dermal bætiefni | Spurningar og svör

Hve fljótt má vænta árangurs af inntöku Membrasin Dermal bætiefninu og minnkuðum einkennum húð þurrks?

Venjulega kemur árangur fram eftir 2-5 vikna reglulega notkun.

Er bætiefnið án glútens, mjólkur og erfðabreyttra innihaldsefna?

Hentar varan fyrir vegan lífsstílinn?

Já, bæði virku innihaldsefnin og hylkin eru að fullu úr jurtaríkinu. Varan hentar vel fyrir vegan og fólki á halal og kosher fæði.

Eru einhverjar aukaverkanir fylgjandi inntöku bætiefnisins?

Ekki hefur verið greint frá neinum sérstökum slíkum áhrifum. Hjá fólki sem þjáist af bakflæði í meltingarvegi geta allar vörur sem innihalda olíu valdið einkennum og þess vegna er mælt með því að taka hylkin með máltíðum ásamt vatni. Jákvæð aukaverkun gæti verið aukinn raki og mýkt í annarri slímhúð en augna, sem og í húð.

Hvernig hefur virkni og árangur af inntöku vörunnar verið rannsakaður / sannaður?

Varan hefur verið prófuð í klínískum rannsóknum þar sem verkun hefur verið borin saman við lyfleysuolíu. Virkni hefur verið prófuð með því að mæla til dæmis vökvastig og mýkt slímhúðar sem og með dagbókum einkenna. Hvorki prufuhópur né vísindamenn vissu meðan á rannsókninni stóð hvaða olíu prufuhópurinn tók.

Má taka bætiefnið á meðan á þungun eða brjóstagjöf stendur?

Já, varan inniheldur gæðastýrða hreina næringarolíu, laus við aðskotaefni eða önnur skaðleg efni.

Er í lagi að taka Membrasin moisture bætiefnið með öðrum fitusýrum, eins og fiskolíu?

Já, en þá er ráðlagður dagskammtur 1-2 hylki.

Er í lagi að taka inn bætiefnið ef viðkomandi er á einhverjum lyfjum??

Ef þú ert með alvarlegan sjúkdóm (krabbamein, hjarta- eða æðasjúkdóma osfrv.) þá er mælt með mælt með því að þú ræðir inntöku á olíu / andoxunarefnum við lækninn þinn.

Membrasin Dermal græðikrem | Spurningar og svör

Er Membrasin Dermal græðikremið hentugt fyrir börn?

Membrasin Dermal græðikremið hentar öllum 4 ára og eldri en börn yngri en 4 ára skulu nota það undir leiðsögn heilbrigðisstarfsmanns.

Inniheldur Membrasin Dermal græðikremið innihaldsefni úr dýraríkinu?

Nei, kremið er 100% úr dýraríkinu

Ummæli

Fyrir 25 árum síðan fór ég
í legnám og hef síðan átt í vandræðum með slímhúðarþurrk. Ég hef prófað nánast
allt sem ég hef fundið á markaðnum fyrir slímhúðarvandamál en varð aldrei nógu
góð. Í nóvember 2022 keypti ég mebrasin hylki og krem fyrir slímhúð og hef
notað síðan. Eftir fyrstu vikuna fann ég stóran mun og líðan mín hefur allar
götur síðan, farið stigbatnandi. Í fyrstu tók ég 4 hylki á dag og notaði kremið
daglega fyrsta mánuðinn. Í dag tek ég 2 hylki á dag og nota kremið 1-2x í viku
og hef öðlast nýtt líf. Mér hefur ekki liðið svona vel í 25 ár! Ég mæli
heilshugar með þessum vörum, þær hafa breytt lífi mínu til hins betra.

Esther Kristinsdóttir

Notaði Membrasin eftir krabbameinsmeðferð, þá var ég að ljúka krabbameinsmeðferð, sem hafði meðal annars þau áhrif að valda miklum þurrki í slímhúð líkamans. Ég fann gríðarlega mikinn mun strax eftir vikunotkun hylkja og krems og hef síðan notað vöruna að staðaldri. Ég finn að þetta hjálpar mikið til og færir mig stöðugt nær betri heilsu. Ég get því heilshugar mælt með Membrasin vörunum."

Kristín Berta

Ég hef alla tíð verið með exem á líkamanum sem ég hef reynt að halda niðri með allskonar sterakremum með misjöfnum árangri. Mér barst til eyrna ágæti Membrasin bætiefnisins og ákvað að slá til og prófa. Maður minn árangurinn stóð ekki á sér og eftir mánaðarskammt af Membrasin gat ég sagt bless við sterakremin og haldið exeminu niðri með því að taka Membrasin. Tilfinningin er svo góð að geta sleppt sterakremunum og nært húðina með bætiefnunum frá Membrasin

Jónína Guðrún Reynisdóttir

Ég hef verið að berjast við mikinn þurrk í andliti, á hálsi, inn í eyrum og á hársverði í nokkra mánuði. Búin að reyna fjöldann allan af allskonar kremum, raka möskum og hársápum sem virkuðu ekkert. Ég byrjaði að nota vörurnar frá Membrasin Dermal línuna fyrir c.a. 3 vikum og á einni viku fann ég mikinn mun á húðinni sem fer bara batnandi með hverjum deginum. Ég tek 4 hylki á dag, ber húðolíuna á mig alla morgna, set hana einnig inn í eyrun (með eyrnapinna) og set á mig græðikremið tvisvar á dag. Það sem mér finnst best við t.d. græðikremið er hversu drjúgt það er, búin að nota það í 3 vikur og sér varla á því, þarf ekki mikið í einu. Get svo sannarlega sagt að þessar vörur eru góðar og kremið endingargott, eina sem hefur unnið á mínum húðþurrki og ég er svo sannarlega búin að prófa allt"

Guðbjörg Sóley Þorgeirsdóttir

Ég hef verið að glíma við húðvandamál í um 15 ár. Þau einkenni sem
ég hef verið með er mikill roði og ertingu í kringum nef, undir augum og fæ ég einnig
þurkkubletti í andlitið og í hársvörð.  

Þeir læknar sem ég hef leitað til 
hafa sagt að ég sé með exem og hef ég aðalega fengið uppáskrifuð
sterakrem við því. Notkun sterakrema til lengri tíma hefur slæm áhrif á húðina og hef ég ekki notað slík krem í yfir 10 ár vegna húðþynningar.  

Ég hef mikið verið að prófa mig áfram með krem sem eru seld við exemi
en hef ekki fundið krem sem hefur skilað nægilega góðum árangri. 

Þegar ég sá að Membrasin á Íslandi var að auglýsa eftir aðila til að prófa nýja húðvöru þá
setti ég mig í samband við þau og fékk prufur af Membrasin vörunum.

Ég hef verið að prófa Dermal vörulínuna. 

Eftir að hafa notað vöruna  í um tvo mánuði þá er ég orðin mikið betri í
húðinni og hársverðinum, þrátt fyrir að undanfarnar vikur hefur loftið verið
mjög kalt og loftið þurrt, en hefur þetta verið sá tími sem ég er hvað verstur
í húðinni. 

Ég mæli með að fólk prófi Membrasin vörurnar og kanni hvort þetta sé
ekki eitthvað sem hentar þeim.

Ívar Örn

Membrasin | Sölustaðir