Augnheilsa

Safn: Augnheilsa

Verð Endurhlaða
kr
0
5798
kr
kr
Verð lægsta til hæsta
Flokka eftir
Sía og raða
Sía og raða

2 products

Flokkun
Verð
kr
kr
Vörumerki
Vöruflokkar

2 products

Membrasin Vision bætiefni | Spurningar og svör

Hve fljótt má vænta árangurs af inntöku Membrasin Vision og minnkuðum einkennum augnþurrks?

Venjulega kemur árangur fram eftir 2-5 vikna reglulega notkun.

Ætti ég að taka bætiefnahylkin með máltíðum?

Mælt er með því að taka hylkin með máltíðum, þar sem það eykur frásog virku innihaldsefnanna.

Úr hverju eru hylkin gerð?

Hylkin er að fullu úr jurtaríkinu, úr maíssterkju.

Hentar Membrasin Vision hylkin fyrir grænkera (vegan)?

Já, virku innihaldsefnin og hylkin eru 100% úr jurtaríkinu og henta því fyrir vegan lífsstílinn.

Einnig fyrir Halal og kosher mataræði.

Hentar varan fyrir vegan lífsstílinn?

Já, bæði virku innihaldsefnin og hylkin eru að fullu úr jurtaríkinu. Varan hentar vel fyrir vegan og fólki á halal og kosher fæði.

Er bætiefnið án glútens, mjólkur og erfðabreyttra innihaldsefna?

Já.

Mega börn taka Membrasin Vision hylkin?

Já börn mega taka hylkin, vegna þess að þau innihalda hreina næringarolíu. Ráðlagður skammtur fyrir börn eru 1-2 hylki á dag.

Eru einhverjar aukaverkanir fylgjandi inntöku bætiefnisins?

Ekki hefur verið greint frá neinum sérstökum slíkum áhrifum. Hjá fólki sem þjáist af bakflæði í meltingarvegi geta allar vörur sem innihalda olíu valdið einkennum og þess vegna er mælt með því að taka hylkin með máltíðum ásamt vatni. Jákvæð aukaverkun gæti verið aukinn raki og mýkt í annarri slímhúð en augna, sem og í húð.

Hvernig fer framleiðslan á olíunni fram, hvaða aðferð er notuð?

SBA24® Sea Buckthorn Oil er framleidd með SFE aðferðinni (Supercritical Fluid Extraction), þar sem olíuhluti berjahráefnisins er dreginn út með koltvísýringi undir þrýstingi. Í ferlinu eru ekki notuð nein skaðleg leysiefni og varan því algjörlega hrein.

Hvernig hefur virkni og árangur af inntöku vörunnar verið rannsakaður / sannaður?

Varan hefur verið prófuð í klínískum rannsóknum þar sem verkun hefur verið borin saman við lyfleysuolíu. Virkni hefur verið prófuð með því að mæla til dæmis vökvastig og mýkt slímhúðar sem og með dagbókum einkenna. Hvorki prufuhópur né vísindamenn vissu meðan á rannsókninni stóð hvaða olíu prufuhópurinn tók.

Má taka bætiefnið á meðan á þungun eða brjóstagjöf stendur?

Já, varan inniheldur gæðastýrða hreina næringarolíu, laus við aðskotaefni eða önnur skaðleg efni.

Má nota bætiefnið ef viðkomandi tekur inn einhver lyf?

Ef þú ert með alvarlegan sjúkdóm (krabbamein, hjarta- og æðasjúkdóma osfrv.) mælum við með því að þú ræðir við lækninn þinn um notkun olíu / andoxunarefna.

Membrasin Vision augnúði | Spurningar og svör

Hversu mörgum sinnum á dag get ég notað Vision augnúðann?

Membrasin Vision augnúðanum má úða á lokuð augnlok nokkrum sinnum á dag og eftir þörfum. Ráðleggingar um venjulega notkun eru 1-2 úðar 1-4 sinnum á dag.

Það er dálítið stíft að úða úr flöskunni, hvernig stendur á því?

Flaskan er með tveggja þrepa úða búnaði. Fyrst skaltu ýta skammtaranum niður um það bil 2/3 af leiðinni og aðeins eftir það alla leið niður. Ef þú reynir að ýta í einu lagi gæti það verið dálítið stíft.

Er úðinn ætlaður til stöðugrar notkunar?

Já, Membrasin Vision úðinn er klínískt prófaður, CE merktur  og staðfest með rannsóknum að langtímanotkun á honum er örugg.

Hvernig er best að nota úðann svo ég hitti vel á augnlokin með lokuð augun?

Eftir smá æfingu verður notkunin auðveld. Úðinn virkar best þegar þú þrýstir skammtaranum fyrst niður hluta leiðarinnar, einbeitir þér síðan að stútnum, lokar augunum, þrýstir skammtaranum alla leið niður og heldur hendinni stöðugri.

Hefur Membrasin Vision áhrif á hrukkur í kringum augun?

Úðinn hefur rakagefandi áhrif á húðina í kringum augun. Þegar húðin er rakafyllt helst hún þétt og lítur út fyrir að vera sléttari.

Má nota úðann eftir að notaður hefur verið augnfarði?

Já, úðinn hefur ekki áhrif á maskara eða augnfarða. Í klínísku prófunum var förðun látin þorna í 10 mínútur áður en úðinn var notaður.

Mega þeir sem nota augnlinsur nota úðann?

Já, hann gefur snertilinsum einnig viðbótar raka án þess að valda óskýrleika í sjón.

Getur hafþyrnisolían litað augun?

Það gerir hún ekki, vegna þess að í vöruna er notuð litlaus gæða hafþyrnisolía sem sérstaklega er þróuð í þessum tilgangi.

Má nota úðann á börn?

Það má gera það, en hafa skal úðaglasið 25 cm frá auganu þegar úðað er. Ef augu barnsins eru rauð og rennur úr þeim, þá er líklegt að barnið sé með augnsýkingu sem læknir ætti þá að meðhöndla.

Hvað er ef úðinn hittir ekki augað?

Það er ekki vandamál. Innihaldsefni vörunnar virka einnig sem rakakrem fyrir húðina á augnsvæðinu.

Video

Membrasin | Sölustaðir