Þurrkur í slímhúð og kynfærasvæði getur komið fram hjá konum á öllum aldri. Einkenni þurrks á kynfærasvæði eru meðal annars sviði, kláði og erting í slímhúð legganga. Einkennin stafa oftast af minnkaðri framleiðslu estrógens í eggjastokkum. Tíðahvörf eru algengasta orsök lágs estrógenmagns, sem leiðir til þurrks og þynningar slímhúðar í leggöngum, svokallaðrar rýrnunar (atrophiu) (1). Hins vegar getur þurrkur í leggöngum komið fram hjá konum á öllum aldri.
Estrógenmagn getur minnkað við brjóstagjöf
Algengasta orsök minnkaðs estrógenmagns hjá konum á barneignaraldri er brjóstagjöf (2). Magn estrógens minnkar eftir fæðingu og lækkar enn frekar meðan á brjóstagjöf stendur, niður í það stig að þurrkur myndast í slímhúð legganga (2, 3). Minnkað estrógenmagn skýrir í raun hvers vegna þurrkur í leggöngum er meira en sjö sinnum algengari hjá konum sem hafa barn á brjósti en hjá konum sem gefa pela (2).
Þurrkur á kynfærasvæði getur einnig stafað af lyfjum og læknisfræðilegum inngripum
Ákveðin lyf og læknisfræðilegar aðgerðir sem valda hormónaójafnvægi geta einnig leitt til þurrks á kynfærasvæði.
Lyf við legslímuflakki, krabbameinslyfjameðferð og skurðaðgerð þar sem eggjastokkar eru fjarlægðir geta minnkað estrógenmagn í líkamanum og valdið einkennum þurrks á kynfærasvæði (4).
Hormónagetnaðarvarnir eru einnig notaðar til að stýra magni hormóna sem eggjastokkarnir framleiða, þ.e. estrógens, prógesteróns og andrógena. Getnaðarvarnarpillur lækka yfirleitt magn estrógens í blóðrás, og tengsl hafa fundist milli notkunar þeirra og þurrks í leggöngum (5, 6). Þurrkur getur einnig stafað af minnkuðu magni andrógena vegna notkunar getnaðarvarnarpillna, þar sem andrógen eru bæði forstig estrógens og nauðsynlegur þáttur í slímmyndun líkamans (6).
Auk læknisfræðilegra inngripa sem hafa áhrif á estrógenmagn geta bólulyf sem innihalda ísótretnóín einnig valdið þurrki í slímhúð (7).
Bót á einkennum slímhúðar
Notkun rakagefandi krema er helsta meðferð við þurrki á kynfærasvæði (4, 6). Staðbundin krem sem innihalda lítið magn estrógens eru einn möguleiki (4, 6), en hormónalausar meðferðir geta hentað betur fyrir sumar konur. Til dæmis getur hormónalaus meðferð verið heppilegri fyrir sumar konur með brjóstakrabbamein, þar sem sýnt hefur verið fram á að estrógen geti stuðlað að vexti og útbreiðslu ákveðinna krabbameinsfrumna (8).
Hafþyrnisolía er hormónalaus meðferðarlausn sem styður eðlilega starfsemi slímhúðar (9). Í klínískum rannsóknum hefur staðbundin notkun hafþyrnisolíukrems (Membrasin® Vaginal Vitality Cream) sýnt fram á bætta heilsu slímhúðar í leggöngum hjá konum á tíðahvörfum, samkvæmt heilsuvísitölu slímhúðar (10). Að auki dregur hafþyrnisolíukrem úr einkennum þurrks á nánasvæði, ertingu og viðkvæmni á leggöngusvæði bæði hjá konum á tíðahvörfum og yngri konum (10). Græðandi áhrif hafþyrnisolíukrems á slímhúð eru líklega vegna samverkandi verndandi áhrifa hafþyrnisolíunnar og rakagefandi áhrifa hýalúrónsýru.
SBA24® hafþyrnisolíuhylki (Membrasin® Feminine Moisturizer fæðubótarefni)* innihalda mikið af nauðsynlegum ómega-fitúsýrum, E-vítamíni og karótenóíðum sem eru forstig A-vítamíns. A-vítamín stuðlar að heilbrigði slímhúðar og E-vítamín verndar frumur gegn oxunarálagi (11). Hafþyrnisolía tekin sem fæðubótarefni hefur slímhúðstyrkjandi áhrif sem líklega stafa af samverkandi áhrifum allra ofangreindra innihaldsefna (8).
*Fæðubótarefni: inniheldur beta-karótín, uppsprettu A-vítamíns sem styður við viðhald eðlilegrar sjónar og húðar. E-vítamín stuðlar að vernd frumna gegn oxunarálagi.
Heimildir:
- Nappi, Kokot-Kierepa. Women’s voices in the menopause: results from an international survey on vaginal atrophy. Maturitas. 2010; 67(3): 233-38.
- Agarwal ym. Application of the Estrogen Threshold Hypothesis to the Physiologic Hypoestrogenemia of Lactation. Breastfeed Med. 2015; 10(2): 77-83.
- Barbieri RL. Hormone treatment of endometriosis: the estrogen threshold hypothesis. Am J Obstet Gynecol.1992 Feb;166(2):740-5.
- Tiitinen A. Emättimen limakalvojen kuivuminen. The Finnish Medical Association, Duodecim. 2017; article id: dlk00118 (016.008).
- Sabatini, Cagiano. Comparison profiles of cycle control, side effects and sexual satisfaction of three hormonal contraceptives. 2006; Contraception. 74: 220-23
- Casey ym. Impact of Contraception on Female Sexual Function. J Women’s Health. 2017; 26 (3): 207-13.
- McLane J. Analysis of common side effects of isotretinoin. J Am Acad Dermatol 2001; 45: S188-94.
- Erkkola R. Sea buckthorn and breast cancer. 2018; expert opinion, unpublished.
- Suryakumar ym. Medicinal and therapeutic potential of Sea buckthorn (Hippophae rhamnoides L.). J Ethnopharmacol. 2011; 138(2): 268-78.
- Membrasin® Vitality Cream clinical trial, manuscript in preparation.
- Larmo ym. Effects of sea buckthorn oil intake on vaginal atrophy in postmenopausal women: A randomized, double-blind, placebo-controlled study. 2014; 79(3): 316-21.


