Fara í vöruupplýsingar
1 of 4

Membrasin Dermal

Membrasin Dermal | Græðikrem

56001072

Verð
4.719 kr
Verð
Afsláttarverð
4.719 kr
Vsk innifalinn og sendingarkostnaður reiknast í greiðsluferli Shipping calculated at checkout.

Membrasin® Dermal er fyrir alla fjölskylduna. Varan hefur virk og fyrirbyggjandi áhrif á viðkvæma og þurra húð og jafnvel á exem. Láttu náttúruna sjá um þig og þína nánustu frá toppi til táar.

Verndar húðina á náttúrulegan hátt, bætir varnareiginleika hennar og kemur í veg fyrir þurrk. Meðhöndlar ofnæmisviðbrögð og þurra húð og dregur úr kláða.

  • Dregur úr einkennum ofnæmisexems
  • Virkni staðfest með klínískum rannsóknum
  • Hentar fyrir alla fjölskylduna
Vörulýsing

Membrasin®-græðikrem slær á ofnæmisexem, kláða og roða. Það mýkir einnig þurra húð og veitir raka.

Sólberjafræsolía er afar góð uppspretta ómega-3, -6 og -9 fitusýra sem eru nauðsynlegar fyrir heilbrigða húð. Samsetning sólberjafræsolíu og annarra virkra náttúrulegra innihaldsefna ver viðkvæma, þurra húð og exemhúð á áhrifaríkan hátt.

Öryggi og virkni græðikremsins hefur verið staðfest með vísindalegum hætti og það hentar fyrir alla fjölskylduna.

• Dregur úr kláða og roða.
• Mýkir húðina og gefur raka.
• Verndar húðina, bætir varnareiginleika hennar og kemur í veg fyrir þurrk og bólgu.
• Virkni staðfest í klínískum rannsóknum.
• Inniheldur náttúruleg virk efni (t.d. sólberjafræsolíu, natríumhýalúronat, kókosfeiti, shea-smjör, sykurmöndluolíu, mjólkursýru)
• Stutt með klínískum rannsóknum: 75% þátttakenda í rannsókn vildu halda áfram að nota Membrasin®-græðikrem til að meðhöndla ofnæmisexem.*

Besti árangurinn næst með því að nota Membrasin®-bætiefnið og Membrasin®-græðikremið til að bæta rakastig húðarinnar og til að njóta ávinnings tvíþættrar húðumhirðulausnar til verndar allri fjölskyldunni.

Membrasin Dermal græðikremið er ætlað til meðferðar á þurri húð og exemi. Kremið gefur húðinni raka og vinnur á exemi og tilheyrandi kláða. Virkni kremsins byggist á kláðastillandi og bólguhamlandi innihaldsefnum þess á borð við jurtaolíur, fitur og rakagjafa. Sólberjakjarnaolía inniheldur línólsýru (LA), sem er ómissandi fyrir heilbrigði húðarinnar, og gamma-línólensýru (GLA), sem skortir oft hjá fólki sem þjáist af exemi. Glýserín og hýalúrónsýra binda raka í húðinni á áhrifaríkan hátt.

Græðikremið inniheldur ekki kortisón, ilm- eða litarefni og pH-gildi þess er það sama og í heilbrigðri húð. Kremið er lækningatæki sem er þróað og framleitt í Finnlandi og hefur undirgengist klínískar rannsóknir þar.

Innihald

Glýserín (3%), Ribes nigrum (svartberja) fræolía (1%), natríumhýalúrónat (0,1%), vatn (Aqua), kaprýl-/kaprínþríglýseríð, hert kókosolía, cetearyl alkóhól, Butyrospermum parkii (shea) smjör, pentýlen glýkól, Prunus amygdalus dulcis (sæt möndlu) olía, cetyl alkóhól, polýglýserýl-3 metýlglúkósa dísterat, bútýlen glýkól, tókóferýl asetat (E-vítamín), mjólkursýra, hýdroxýfenýl própamídóbensósýra (díhýdróavenantramíð D), Helianthus annuus (sólblóma) fræolía, Rosmarinus officinalis (rósmarín) laufútdráttur, fenoxýetanól, etýlhexýlglýserín.

Membrasin®-græðikrem er CE-merkt lækningavara.

Notkun

Til meðferðar á þurri húð og exemi. Berið á þurra húð og/eða kláðasvæði kvölds og morgna eða oftar ef þörf er á. Kremið má nota á allan líkamann eða aðeins á svæði þar sem erting eða þurrkur er mikill. Má ekki nota á slímhúð og forðast skal að bera á augnsvæðið. Má ekki nota á mikið skaddaða húð, þ.m.t. á sár eða blæðandi exem. Börn: hentar frá fjögurra ára aldri.

Viðvaranir og leiðbeiningar

* Ekki nota kremið ef þú hefur ofnæmi fyrir eða þolir illa einhver innihaldsefnanna

* Ef ofnæmisviðbrögð eða önnur erting koma fram (t.d. kláði eða útbrot) skal hætta notkun vörunnar. Einnig skal hætta notkun kremsins ef einhverjar aðrar aukaverkanir koma fram. Hafið samband við starfsfólk í apóteki eða heilbrigðisstarfsmann ef þörf krefur

* Ef húðin er mjög þurr getur tímabundinn sviði komið fram fyrstu dagana sem kremið er notað

* Ekki nota kremið á mikið skaddaða húð (s.s. á sár)

* Ekki nota kremið ef áferð þess hefur breyst verulega við geymslu eða ef túpan er skemmd

* Berið kremið á með hreinum höndum

• Ekki nota kremið eftir að það rennur út. Vöruna má nota í 12 mánuði eftir opnun eða þar til hún rennur út (endingartími er 12 mánuðir)

• Börn yngri en fjögurra ára: notist aðeins samkvæmt leiðbeiningum frá lækni.

Varúðarupplýsingar

    Membrasin Dermal | Græðikrem
    Membrasin Dermal | Græðikrem
    Membrasin Dermal | Græðikrem

    Ummæli

    Frábær vara

    Author's name

    Add customer reviews and testimonials to showcase your store's happy customers.

    Author's name

    Add customer reviews and testimonials to showcase your store's happy customers.

    Author's name

    Add customer reviews and testimonials to showcase your store's happy customers.

    Author's name

    Add customer reviews and testimonials to showcase your store's happy customers.

    Author's name