Númer eitt I Meltingarstyrkur

Númer eitt meltingarstyrkurinn er framleiddur undir okkar vörumerki. Bætiefnið inniheldur gerilinn Lactobacillus Rhamnosus, sem rannsóknir hafa sýnt að virkar vel til inntöku með sýklalyfjum. Ástæðan er sú að þessir góðgerlar, umfram aðra, hafa mótstöðu gegn bakteríudrepandi áhrifum sýklalyfjanna og komast því lifandi niður í meltingarveginn, án þess að lyfin hafi mikil áhrif á þá.