Fara í vöruupplýsingar
1 of 3

Higher Nature

Higher Nature | True Food® Rekindle fyrir konur

56006602

Verð
5.925 kr
Verð
0 kr
Afsláttarverð
5.925 kr
Vsk innifalinn og sendingarkostnaður reiknast í greiðsluferli Shipping calculated at checkout.

Endurvektu kynlöngun þína með meðferðarskömmtum af náttúrulegri blöndu jurtaefna sem auka kynhvötina, ásamt viðbættu True FoodTM-sinki. Inniheldur efni úr kynorkuaukandi jurtum ásamt Liboost®, sem hefur vísindalega sannprófaða virkni sem hjálpar þér að endurvekja samband þitt við huga og líkama.  

Ávinningur:

  • Eykur kynhvöt
  • 100% náttúrlega virk efni
  • Vísindalega sönnuð virkni Liboost®

Fyrir hverja:

  • Konur á breytingaskeiði sem leitast eftir náttúrulegri lausn við lítilli kynhvöt
  • Konurá breytingaskeiði sem upplifa áhugaleysi, orkuleysi og skapsveiflur  
  • Konur á breytingaskeiði sem leitast eftir að draga úr krefjandi einkennum með náttúrulegum hætti
  • Einstaklingar sem leitast eftir því að koma jafnvægi á testósterón í líkamanum (eykur ekki magn umfram eðlileg lífeðlisfræðileg mörk og virkar því best fyrir einstaklinga með lágt testósterón)

Samantekt:

  • Stuðlar að hormónajafnvægi
  • Dregur úr einkennum breytingaskeiðs
  • Eykur orku
  • Stuðlar að jafnvægi í skapi
  • Eykur blóðflæði 
Vörulýsing

Helstu kostir:

Endurvektu kynhvötina
Tengstu sjálfri þér aftur
Stuðlar að eðlilegu magni testósteróns
Stuðlar að eðlilegum magni kvenhormóna
Stuðlar að eðlilegum blóðsykurgildum
Ríkt af góðum fjölfenólum og andoxunarefnum

Hvernig virkar þetta?

Blandan eykur kynhvöt eftir nokkrum leiðum:

Grikkjasmári stuðlar að jafnvægi estrógens og testósteróns – það hjálpar til við að auka kynhvöt og örvun.

Rannsóknir hafa einnig sýnt fram á að kryddið dragi úr öðrum einkennum breytingaskeiðs, svo sem hitakófi, skapsveiflum og nætursvita, sem oft geta dregið úr kynlöngun.

Liboost eykur blóðflæði sem stuðlar að örvun og dregur úr óþægindum og þurrki í leggöngum (með því að auka losun köfnunarefniseinoxíðs, sem er æðavíkkandi efni)

Liboost hjálpar einnig til við að slaka á sléttum vöðvum í leggöngum sem dregur úr óþægindum og eykur ánægju.

Þar að auki stuðlar Liboost að jafnvægi testósteróns innan eðlilegra lífeðlisfræðilegra marka kvenna með því að draga úr niðurbroti testósteróns ef þess þarf.

Sýnt hefur verið fram á að panax ginseng auki blóðflæði með því að auka losun köfnunarefniseinoxíðs, og hefur það lengi verið notað til að bæta kynheilbrigði.

Sýnt hefur verið fram á að panax ginseng hafi hamlandi áhrif á ensímið sem brýtur testósterón niður í DHT og því getur það hjálpað til við að hækka/koma jafnvægi á magn testósteróns hjá þeim sem þurfa á því að halda.

Sýnt hefur verið fram á að panax ginseng dragi úr skaplægð sem getur dregið úr kynlöngun og kynferðislegri virkni. Minnkað oxunarálag í heila og lækkað magn kortikósteróns í sermi gætu átt þátt í þessu.

Sýnt hefur verið fram á að Panax ginseng dragi úr þreytu, líklega sökum þess hve ríkt það er af andoxunarefnum.

Hugsanlegt er að Panax ginseng geti haft frekari áhrif á hormónakerfið með því að virka sem plöntuestrógen og hafa þannig áhrif á estrógenviðtaka, rannsóknir eru þó ekki samhljóða.

Tribulus hefur verið notuð sem kynorkuaukandi jurt, bæði í ayurvedískum og kínverskum lækningum, í því skyni að auka kynheilbrigði og lífsþrótt.

Rannsóknir sem notast við klínískt vottaða FSFI-kvarðann (e. female sexual function index) hafa sýnt fram á aukna kynhvöt kvenna, bæði fyrir og eftir tíðahvörf, við notkun tribulus. Þetta er talið vera af völdum aukningar á óbundnu og lífaðgengilegu testósteróni án þess að heildarmagn testósteróns verði fyrir áhrifum.

Innihald

Fenigreksfræútdráttur, damiana (Turnera diffusa) laufútdráttur [Liboost®], hylkjakápa (hýdroxýprópýlmetýlsellulósi), Tribulus terrestris staðlaður útdráttur, kóreskt ginseng (Panax ginseng) útdráttur, shiitake sveppur (aldinhluti) (inniheldur sellerí).

Notkun

Fullorðnir taka 2 hylki daglega með máltíð. Ekki fara yfir ráðlagðan dagsskamt.

Fæðubótarefni ættu ekki að vera notuð sem staðgengill fyrir fjölbreytta fæðu og heilbrigðan lífsstíl.

Varan er ekki ætluð konum yngri en 18 ára, þungaðar konur ættu ekki að taka inn fæðubótarefnið.

Ekki er ráðlagt að taka inn fæðubótarefnið ef þú ert á blóðþynnandi lyfjum og eða glímir við heilsubrest. Mælst er með því að ráðfæra sig við heilbrigðisstarfólk.

Geymdu á köldum, þurrum stað utan seilingar barna.

Varúðarupplýsingar

Ekki skal neyta meira af vörunni en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um.

Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar og næringarríkrar fæðu.

Geymið vöruna þar sem börn hvorki ná til né sjá hana.
    Higher Nature | True Food® Rekindle fyrir konur
    Higher Nature | True Food® Rekindle fyrir konur

    Ummæli

    Frábær vara

    Author's name

    Add customer reviews and testimonials to showcase your store's happy customers.

    Author's name

    Add customer reviews and testimonials to showcase your store's happy customers.

    Author's name

    Add customer reviews and testimonials to showcase your store's happy customers.

    Author's name

    Add customer reviews and testimonials to showcase your store's happy customers.

    Author's name