Membrasin Moisture | Leggangakrem
56001067
- Verð
-
3.398 kr - Verð
-
0 kr - Afsláttarverð
-
3.398 kr
Membrasin Moisture leggangakremið er hormónalaust með sannaða virkni (MD lækningatæki). Kremið nærir slímhúð legganga, húð og slímhúð ytri kynfæra og er engin hliðstæð vara til á markaði.
Kremið inniheldur hafþyrnisolíu SBA24® sem er rík af Omega7 ásamt hyaluronsýru sem eykur raka og mýkir. Einnig inniheldur kremið mjólkursýru sem hefur góð áhrift á bakteríuflóru legganga og stuðlar að réttu sýrustigi.
Vörulýsing
Membrasin Moisture leggangakrem er ætlað konum sem þjást af leggangaþurrki eða óþægindum á kynfærasvæði. Slík einkenni geta komið fram á ýmsum skeiðum lífsins, til dæmis á breytingaskeiði, á meðan barn er á brjósti, í krabbameinsmeðferð eða andhormónameðferð, sem og hjá konum með ákveðna sjúkdóma.
Einnig getur leggangaþurrkur verið aukaverkun af notkun getnaðarvarnarpillna eða annarra lyfja, svo sem geðlyfja, eða tengst ójafnvægi í gerlaflóru og sýrustigi legganga. Kremið hentar sérstaklega konum sem vilja forðast hormónameðferð og leita að mildri lausn til að draga úr þurrki og óþægindum.
Kremið inniheldur einstaka blöndu af SBA24® hafþyrnisolíu, mjólkursýru og hýalúrónsýru. Hafþyrnisolía hjálpar til við að vernda og auka raka slímhúðar, mjólkursýra stuðlar að jafnvægi í pH-gildi og hýalúrónsýra bindur raka. SBA24® er sú hafþyrnisolía sem mest hefur verið rannsökuð í heiminum og samsetning hennar, virkni og öryggi hafa verið staðfest í klínískum rannsóknum.
Þríþætt virkni Membrasin® Vaginal Moisture Cream verndar og rakar:
Hafþyrnisolía styrkir og verndar slímhúð og húð á nánasvæði
Hýalúrónat hámarkar rakastig
Mjólkursýra tryggir ákjósanlegt pH-jafnvægi
Í klínískri rannsókn vildu 84% þátttakenda halda áfram að nota Membrasin® Vaginal Moisture Cream til að meðhöndla einkenni sem tengjast þurrki í leggöngum og á skapabörmum.*
Í pakkningunni er CE-merkt, fjölnota stjaka.
Meðhöndlið þurrk bæði ytra og innra með kremi og hylkjum
Til að ná sem bestum árangri er mælt með tveggja þrepa lausn Membrasin® Moisture: Membrasin® Intimate Cream veitir tafarlausa bót við þurrki á kynfærasvæði og í leggöngum, á meðan Membrasin® Feminine Moisturiser fæðubótarhylki veita langvarandi, náttúrulega innri rakagjöf fyrir húð og slímhúð.
* N = 164
Innihald
Sea Buckthorn Oil 3% (Hafþyrnisolía)
Lactic Acid 1% (Mjólkursýra)
Sodium Hyaluronate 0,1% (Natríumhýalúrónat)
Hippophae Rhamnoides (Sea Buckthorn) Oil (3%), Lactic Acid (1%), Sodium Hyaluronate (0,1%), Aqua, Cetearyl Alcohol, Dicaprylyl Ether, Sodium Lactate, Polysorbate 60, Cetyl Palmitate, Sorbitan Stearate, Helianthus Annuus (Sunflower) Seed Oil, Rosmarinus Officinalis (Rosemary) Leaf Extract, Sodium Dehydroacetate, Sodium Benzoate, Phenoxyethanol.
Membrasin® Vaginal Moisture Cream er CE-merkt lækningatæki.
CE-merkingin þýðir að varan uppfyllir tiltekna evrópska staðla og reglur um öryggi og samsvarandi kröfur fyrir lækningatæki á evrópska efnahagssvæðinu.
Notkun
Stjakan sem fylgir með í pakkningunni er notuð til að sprauta kreminu upp í leggöngin. Hún er skrúfuð á krem túpuna og kremið kreist upp í, upp að svörtu línunni (u.þ.b. 2,4 grömm). Stjakan er skrúfuð af túpunni og kreminu sprautað upp í leggöngin að kvöldi og einnig borið á kynfærasvæði.
Til að fá sem mesta virkni:
Mælt er með að nota kremið á kvöldin áður en farið er að sofa.
Það tryggir að kremið vinni á réttu svæði, í leggöngunum.
Ekki skal nota kremið ef þú ert ofnæmi fyrir einhverju af innihaldsefnum þess. Ekki skal nota stjökuna á meðgöngu.
Lesið vandlega leiðbeiningar um notkun sem fylgja á íslensku í pakkningunni.
Geymsluþol 6 mánuðir eftir opnun.
Varúðarupplýsingar
Gat ekki hlaðið framboði fyrir afhendingu


Membrasin Moisture | Leggangakrem
- Verð
-
3.398 kr - Verð
-
0 kr - Afsláttarverð
-
3.398 kr
Ummæli
Author's nameFrábær vara
Author's nameAdd customer reviews and testimonials to showcase your store's happy customers.
Author's nameAdd customer reviews and testimonials to showcase your store's happy customers.
Author's nameAdd customer reviews and testimonials to showcase your store's happy customers.
Author's nameAdd customer reviews and testimonials to showcase your store's happy customers.

