Í bætiefninu er hafþyrnisolía sem virkar sem eins konar smurning innan frá, en afhverju gerir hún það ? Jú það er af því að olían er mögnuð og einstök af því leitinu til að hún inniheldur mikið magn af Omega 7 fitusýrunni. Það hefur komið í ljós að hún hefur mikla virkni og er því þekkt fyrir að vera einstaklega nærandi, mýkjandi og uppbyggjandi fyrir húðina okkar og með því að taka inn olíuna í formi bætiefnis er hægt að vinna gegn þessum leiðinlega þurrki.
Leggangakremið er hormónalaust með sannaða virkni (MD lækningatæki). Kremið nærir slímhúð legganga, húð og slímhúð ytri kynfæra og er engin hliðstæð vara til á markaði.
Kremið inniheldur hafþyrnisolíu SBA24® sem er rík af Omega7 ásamt hyaluronsýru sem eykur raka og mýkir. Einnig inniheldur kremið mjólkursýru sem hefur góð áhrift á bakteríuflóru legganga og stuðlar að réttu sýrustigi.