Leggangaþurrkur!

Leggangaþurrkur!


3 minute read

Vissir þú að um 80% kvenna fá leggangaþurrk einhvern tímann á ævinni?

Það eru margir hópar kvenna sem lenda í þessu en konur á breytingaskeiði eru líklega stærsti hópurinn. 

Ungar konur á pillunni eða með barn á brjósti, konur í krabbameinsmeðferð, konur á andhormónameðferð, við þessar hressu á breytingaskeiðinu og heldri eldri konur! 

Þetta þurrkvesen getur snert konur á öllum aldri.

En hvernig stendur á að enginn er að tala um leggangaþurrk?

Konur tala um sveppasýkingar, þvagfærasýkingar og allskonar kjallaravesen....en engin talar um þurrkinn.

Gæti það verið vegna þess að okkur finnst þetta neyðarlegt?

Við tengjum þetta kynlífi....eðlilega, þar sem þurrkur getur nú heldur betur skemmt atmóið.

Okkur finnst örugglega pínu neyðarlegt þegar kerfið virkar ekki og allt er þurrt og stíft.

Eins og við getum eitthvað gert að því að líkaminn ákveði að skrúfa fyrir sleipinguna!

Einkenni svona þurrks geta líka verið mjög lúmsk og ástandið verið greint sem eitthvað allt annað.

Þær reyndust bara vera þurrar!

Leggangaþurrkur getur heldur betur skert lífsgæði okkar kvenna.

Kynlíf, sundferðir, líkamsrækt, hjólreiðar....bara alls ekki að gera sig vegna óþæginda.

Þetta ástand er algjörlega glatað, óþægilegt, sáraukafullt og bara ömurlegt!

En hvað er hægt að gera? 

Það er ein jurt sem getur virkað.

Hafþyrnir (Sea Buckthorn).

Úr hafþyrni er unnin olía sem er rík af Omega7 fitusýrunni.

Sú er allra best til að eiga við þurrk í slímhúð og húð.

Leggöngin okkar eru klædd viðkvæmri slímhúð sem þarf næringu og sýnt hefur verið framá með rannsóknum að hafþyrnisolían hjálpar.

Það er hægt að fá hafþyrnisolíu í bætiefnaformi og eins í kremi til að sprauta uppí leggöngin.

Membrasin Woman Vitality, er fallegt vörupar, sem virkar gegn þurrki.

En koma svo konur, ræðum þetta endilega....eftir allt saman þá eru líkurnar um 80% að við lendum í þessu á einhverjum tímapunkti! 

Styrkjum og styðjum hvor aðra, þannig rúllum við best !

Skoða Membrasin

« Back to Blog