Ég hef notað Magnesíum glýsínat núna í nokkra mánuði. Ég fann mjög fljótlega hvað þetta hefur góð áhrif á mín svefngæði. Ég hef verið mjög viðkvæm fyrir svefni í mörg ár og til að hjálpa mér við að ná góðum svefn þurfti ég að styðjast við að nota uppáskrifuð svefnlyf en tók meðvitaða ákvörðun um að hætta á þeim þar sem mér fannst það ekki vera vítahringur sem ég vildi vera í.
Ég prufaði aðferðir til að reyna að ná góðum svefn og öðlast betri svefngæði en það var ekki fyrr en ég kynntist Magnesíum glýsínat að ég fann að ég náði að sofna fyrr á kvöldin og ná betri svefni.
Mín helstu svefn vandamál er að ég á erfitt með að sofna og vakna oft á nóttunni. En með Magnesíum glýsínat þá tekur styttri tíma fyrir mig að sofna og ég er að vakna miklu minna á nóttunni.
Ég mæli 100% með þessum vörum og ekki skemmir fyrir að bragðið er líka mjög gott.
Elín Kristín Guðmundsdóttir

